
Fjölbreytt samsetning fyrir karla með yfir 30 virkum efnum.
Fjölvítamínblandan er sérhönnuð fyrir karla og er með yfir 30 virkum efnum. Einstök blanda af vítamínum, steinefnum, jurtum, ensímum og mjólkursýrubakteríum.
Vítamín og steinefni
Fjölvítamínið fyrir karlmenn inniheldur næringarsamsetningu sem er aðlöguð fyrir karla og inniheldur yfir 30 virk efni. Einstök blanda af vítamínum, steinefnum (ekki járn), jurtum, ensímum og mjólkursýrubakteríum. Fullkomið fyrir þá sem vilja allt í einu. Fjölvítamínið inniheldur öll helstu vítamín og steinefni (ekki járn) sem viðbót við daglega fæðu. Fjölvítamínið inniheldur ekki járn þar sem karlar þurfa sjaldan á viðbót af járni að halda, ólíkt konum sem hafa frekari þörf fyrir járn vegna járntaps við blæðingar.
Ensím og mjólkursýrubakteríur
Fjölvítamínið er styrkt með meltingarensímum og mjólkursýrubakteríum fyrir magann. Náttúruleg ensím úr ananas (bromelain) og papaya (papain) eru svokölluð próteasar sem brjóta niður prótein úr fæðunni sem við neytum. Einnig höfum við bætt við mjólkursýrubakteríum af tegundinni Bacillus coagulans, heilar 1 milljarðs baktería í hverjui hylki! Bacillus coagulans er mjög stöðug baktería sem brotnar ekki niður af saltsýru magans heldur nær óskemmd niður í þarma.
Jurtir
Í fjölvítamíninu höfum við einnig bætt við 5 mismunandi jurtaþykkni sem eru sérsniðin fyrir karla. Tómataþykkni inniheldur lýkópen, sem gefur tómötum rauða litinn og er karótenóíð og andoxunarefni. Granateplaþykkni inniheldur einnig öflug andoxunarefni. Engifer og túrmerik eru þekkt fyrir bólgueyðandi eiginleika sína. Staðlað svartt piparþykkni, Bioperine®, er svokallað „líffræðilegt aukaefni“ sem eykur frásog annarra næringarefna.